Sigurður Sigurðsson

ID: 3107
Fæðingarár : 1882
Fæðingarstaður : Mýrasýsla
Dánarár : 1965

Sigurður Ingimundur og Ásta Straumfjörð Mynd WtW

Sigurður Ingimundur Sigurðsson fæddist í Mýrasýslu 2. október, 1882. Dáinn í Lundar 29. janúar, 1965. Ingimundur Sigurdson vestra.

Maki: 16. júlí, 1911 Ásta Jóhannsdóttir Straumfjörð f. 1. september, 1879 í Mikley, d. 13. september, 1966.

Börn: 1. Jóhann Straumfjörð f. 22. maí, 1912 2. Bergþóra Kristbjörg f. 28. mars, 1915 3. Sigurður Jón Trausti (Tracey) f. 25. janúar, 1919 4. Halldóra Dýrfinna (Dora)  f. 25. janúar, 1919.

Sigurður flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 með foreldrum sínum, Sigurði Sigurðssyni og Bergþóru Bergþórsdóttur og systkinum. Þau settust að í Mikley þar sem Sigurður óx úr grasi og þegar aldur leyfði fór hann að stunda fiskiveiðar. Árið 1903 urðu flóð í Winnipegvatni svo fjölskyldan flutti vestur í Lundarbyggð. Þar nam Sigurður land og bjó á því til ársins 1945 en þá flutti hann til Lundar.