ID: 10312
Fæðingarár : 1855
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1935
Siggeir Jóhannsson fæddist 15. desember, 1855 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Alberta árið 1935.
Maki: Ingibjörg Björnsdóttir fæddist í Skagafjarðarsýslu 19. júní, 1865. Þau skildu fyrir 1900. Dáin 21. apríl, 1958 í Oregon í Bandaríkjunum.
Börn: 1. Albert 2. Pétur (Peter) 3. Dermundur (Mundi) 4. Jón (John) Jack 5. Óskar (Oscar),
Siggeir fór vestur til Kanada árið 1889, sennilega samferða föður sínum, Jóhanni Halldórssyni 0g bróður sínum Theodór. Móðir hans, Halldóra Gunnarsdóttir fór vestur árið áður og aðrir bræður hans, Gunnar, Sigtryggur og Jóhann. Ingibjörg fór vestur árið 1888 og sennilega líkt og Siggeir beint til Alberta. Hann nam land í íslensku nýlendunni og bjó þar alla tíð líkt og bræður hans.
