
Sigurgeir R Sigurgeirsson Mynd VÍÆ III
Sigurgeir Rósberg Sigurgeirsson fæddist í Mikley í Nýja Íslandi 8. október, 1892. Dáinn í Riverton 21. nóvember, 1952.
Maki: Kristbjörg Jóna Márusardóttir f. í Lundi í Mikley 16. júní, 1900, d. 26. ágúst, 1953.
Börn: 1. Vilhjálmur f. 27. september, 1918 2. Ingibjörg f. 15. ágúst, 1921 3. Jón f. 21. nóvember, 1928.
Sigurgeir var sonur Vilhjálms Sigurgeirssonar og Kristínar Þóru Helgadóttur landnema í Mikley í Manitoba. Hann ólst upp í Nýja Íslandi og bjó þar alla tíð. Hann hóf búskap á Heytanga í Ísafoldarbyggð og stundaði að auki fiskveiðar í Winnipegvatni. Flutti þaðan út í Mikley og hóf þar útgerð. Hann annaðist um tíma póstflutninga milli Mikleyjar og Riverton. Árið 1943 keypti hann jörðina Ós við Íslendingafljót og bjó þar síðan. Kristbjörg var dóttir Márusar Jónassonar og Ingibjargar Brynjólfsdóttur, landnema í Mikley.
