ID: 9628
Fæðingarár : 1847
Sigurveig Jónsdóttir fæddist 15. desember, 1847 í S. Þingeyjarsýslu.
Maki: 1866 Benedikt Arason f. í S. Þingeyjarsýslu 13. október, 1837, d. 5. maí, 1923 í Nýja Íslandi.
Börn: 1. Vigfús f. 9. apríl, 1867 2. Sigrún f. 13. desember, 1868 3. Tryggvi f. 26. september, 1870 4. Ari f. 25. október, 1873 5. Skapti f. 22. mars, 1888 6. Guðný 7. Jóna.
Þau fluttu vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og voru eitt ár í Kinmount. Þaðan fóru þau vestur til Nýja Íslands og settust að á Gimli. Benedikt nam land í Víðirnesbyggð og nefndi Velli þar sem fjölskyldan bjó í fjögur ár. Árið 1881 flutti fjölskyldan í Kjalvík í sömu byggð en Skafti, bróðir Benedikts var þá þaðan fluttur í Argylebyggð.
