Sigurveig Jónsdóttir

ID: 10845
Fæðingarár : 1886

Sigurveig Jónsdóttir fæddist 4. júlí, 1886 í N. Múlasýslu.

Maki: 5. febrúar, 1912 Jóhannes Guðjónsson f. í N. Múlasýslu 9. október, 1879.

Börn: 1. Árni Júlíus f. 11. apríl, 1913 2. Guðjón f. 1. október, 1914 3. Daníel f.  12. desember, 1915 4. Jón f. 19. nóvember, 1917, d. í Seinni heimstyrjöldinni 4. júní, 1944 5. Kári f. 20. desember, 1919 6. Wilhelmína f. 16. september, 1921 7. Sigrún f. 7. desember, 1923 8. Helga f. 28. janúar, 1925 9. Einar f. 7. mars, 1928.

Sigurveig fór vestur með föður sínum  Jóni Árnasyni árið 1903. Jóhannes fór til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum árið 1888 og fór sama ár í Garðarbyggð í N. Dakota. Jóhannes flutti þaðan í  Vatnabyggð í Saskatchewan um aldamótin og nam land nærri  Elfros.