Sigurveig Sigurbjarnardóttir

ID: 18236
Fædd(ur) vestra
Fæðingarár : 1890

Sigurveig Sigurbjarnardóttir Mynd VÍÆ II

Sigurveig Sigurbjarnardóttir fæddist 17. febrúar, 1890 í grennd við Glenboro í Manitoba.

Maki: 1. júní, 1909  Jón Árnason fæddist í Nýja Íslandi, skammt frá Gimli 26. september, 1877. Dáinn í Manitoba 3. apríl, 1962.

Börn: 1. Árni f. 1. ágúst, 1910 2. Sveinn Sigurjón f. 8. september, 1912 3. Sigrún Ísberg f. 27. nóvember, 1913 4. María Guðrún f. 17. október, 1916 5. Unnur Fraterman f. 9. mars, 1919 6. Margrét Anna Nordman f. 19. ágúst, 1924.

Foreldrar Sigurveigar voru Sigurbjörn Jóhannsson og María Jónsdóttir, sem vestur fluttu árið 1889. Alsystir hennar var Jakobína Johnson, skáldkona í Seattle.  Jón var sonur Árna Sveinssonar og Guðrúnar Helgu Jónsdóttur, landnema í Manitoba.  Jón var barnungur þegar foreldrar hans fluttu frá Nýja Íslandi og settust að í Argylebyggð.  Þar lauk hann grunnskólanámi, fór svo í verslunarskóla í Winnipeg. Að námi loknu gerðist hann bóndi í Argylebyggð, flutti seinna til Baldur og vann þar við járnsmíðar.