Skúli Þorkelsson

ID: 7004
Fæðingarár : 1860
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1924

Skúli Þorkelsson fæddist í Skagafjarðarsýslu 31. maí, 1860. Dáinn í Lincoln sýslu 25. nóvember, 1924. Gudmundson vestra.

Maki: 26. nóvember, 1892 Rósamunda Guðmundsdóttir f. 30. júlí, 1864 í N. Þingeyjarsýslu, d. 31. júlí, 1925 í Minnesota. Isfeld vestra.

Börn: 1. Stefán (Stephen) Hallgrímur f. 4. október, 1893 2. Anna Sigríður f. 22. febrúar, 1895, tvíburi 3. Sigríður (Sarah) Katrín f. 22. febrúar, 1895 4. Jón Valdimar f. 6. mars, 1898, d. barn 5. Þorbjörg (Bertha) Jóhanna f. 21. október, 1900 6. Rósa f. 13. janúar, 1904 7. Jón Valdimar f. 21. maí, 1907 8. Björn f. 1908 9. Margrét Aðalbjörg f. 14. júlí, 1912.

Skúli flutti vestur árið 1883 með foreldrum sínum, Þorkeli Guðmundssyni og Önnu Sigríði Skúladóttur. Þau settust að í Lincoln sýslu í Minnesota og þar bjó Skúli alla tíð. Rósamunda flutti vestur árið 1879 með föður sínum, Guðmundi Guðmundssyni, konu hans, Rósu Einarsdóttur og systkinum. Þau settust að í Lincoln sýslu í Minnesota.