Skúli Torfason fæddist í N. Múlasýslu árið 1852. Dáinn í Lundar 10. maí, árið 1939.
Maki: 1874 Jóhanna Jacobsdóttir af norskum ættum, f. í Mandel í Noregi, d. í Winnipeg árið 1925.
Börn: 1. Torfi Jóhann f. 1878, d. 1956 2. Bjarni f. 1881 d. 1962 3. Jakobína 4. Þórunn Elísabet f. 1885 5. Lúðvík Aðalsteinn f. 1887, d. 1954.
Skúli stundaði sjómennsku og réðst á norskt skip og sigldi víða. Hann var um skeið í Noregi en flutti þaðan heim til Íslands og bjó á Seyðisfirði. Stundaði þaðan sjómennsku og seinna frá Vopnafirði. Fjölskyldan fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1903 og fór sama ár norður í Lundarbyggð. Þau námu land nærri Álftavatni þar sem þau bjuggu í sjö ár. Þá fluttu þau til Winnipeg þar sem Skúli vann við húsasmíðar. Árið 1923 seldi Skúli hús sitt í Winnipeg og hóf búskap með sonum sínum í Lundarbyggð. Skúli var blindur á efri árum og voru lönd feðganna þá seld, þeir byggði í Lundar þar sem þeir bjuggu eftir það.
