
Snjólfur Eiríksson og Sigurður, sonur hans. Mynd VÍÆ V
Snjólfur Eiríksson fæddist í A. Skaftafellssýslu árið 1865. Dáinn í Blaine í jarnbrautarslysi árið 1917.
Maki: 1892 Elísabet Arnbjarnardóttir f. 3. maí 1859 í Árnessýslu, d. 26. janúar, 1935 í Cloverdale í Bresku Kolumbíu.
Börn: 1. Sigurður f. 1894 2. Guðmundur f. 1901. Elísabet átti fyrir Jónínu Björnsdóttur f. 13. júlí, 1889.
Þau fluttu vestur um haf árið 1903 og settust að í Roseau sýslu í Minnesota og ætluðu að nema þar land. Snjólfur var ekki heilsugóður um þessar mundir og var ljóst að landnám yrði honum ofviða. Þau fluttu þaðan í Piney í Manitoba og þraukuðu í fimm ár, þá gáfust þau upp á sléttunni og fluttu vestur að Kyrrahafi árið 1909. Milt loftslag hafði fljótlega góð áhrif á Snjólf, hann hresstist og náði sér vel. Byggði hús í Blaine og vann þar við járnbrautina.
