Solveig Sveinsdóttir

ID: 9186
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla

Solveig Sveinsdóttir fæddist 20. júní, 1877 í S. Þingeyjarsýslu.

Maki: 14. desember, 1905 Símon Sveinsson f. á Gimli 2. ágúst, 1878, d. í Chicago 27. janúar, 1943.

Börn: 1. Veronica Guðrún f. 28. mars, 1907 2. Sveinn f. 22. apríl, 1908 3. Jóhann Kelly f. 22. febrúar, 1910 4. Valdo Sigfús f. 11. mars, 1913.

Solveig var dóttir Sveins Kristjánssonar og Veroníku Þorkelsdóttur landnema í Víðinesbyggð í Nýja Íslandi. Þau fluttu vestur til Kanada árið 1882. Solveig gekk í barnaskóla í Nýja Íslandi og lauk svo kennaranámi í Winnipeg. Hún kenndi bæði í Kanada og Bandaríkjunum á síðasta áratug 19. aldar. Fór til Íslands árið 1899 og kenndi við Miðbæjarbarnaskólann í Reykjavík árin 1900-1902. Símon var sonur Sveins Sveinssonar og Guðrúnar Símonardóttur landnema í Nýja Íslandi. Símon og Solveig fluttu til Wynyard í Vatnabyggð árið 1907 og bjuggu þar til ársins 1924, fóru þaðan til Chicago. Solveig sneri sér að ritstörfum eftir lát Símonar og flutti til Blaine í Washington.