Stefán Emil fæddist í S. Múlasýslu 1. mars, 1883.
Maki: Björg Jósefsdóttir f. 16. desember, 1886 í Minnesota. Bertha Asbjornson vestra.
Börn: 1. Durward Joseph f. 3. ágúst, 1906 2. William Evrett f. 27. maí, 1908.
Stefán var sonur Fritz Wilhelm Zeuthen læknis og konu hans Thora Emelie Rasmussen, bæði dönsk. Bróðir Stefáns flutti vestur til Minnesota árið 1886 og þangað fór Stefán, sennilega rétt eftir aldamótin. Í manntali í Minnesota árið 1905 er hann skráður einsamall til heimilis í Minneota og var trésmiður. Björg var dóttir Jósefs Ásbjörnssonar og Ólafíu Steinunnar Valdimarsdóttur sem vestur fluttu árið 1879. Þegar þau ákváðu að flytja frá Minnesota vestur til Montana fóru Stefán og Björg með þeim og voru skráð í Fergus í Montana árið 1918. Árið 1930 eru þau svo vestur í Portland í Oregon.
