
Stefán Eyjólfsson Mynd SÍND

Guðrún Þorláksdóttir Mynd SÍND
Stefán Eyjólfsson fæddist í N. Múlasýslu 25. desember, 1849. Dáinn í Garðarbyggð 17. janúar árið 1933.
Maki: 29. október, 1885 Guðrún Þorláksdóttir f. 12. nóvember, 1859, d. 1943.
Börn: 1. Þórdís Anna f. 1886, d.1890 2. Sesselja Steinunn f. 5. febrúar, 1888 2. Þorlákur Emanúel f. 25. desember, 1890 3. Þórdís Guðrún f. 10. apríl, 1892 4. Margrét Sigurbjörg f. 2. október, 1894 5. Pearl Guðfinna f. 15. október, 1896 6. Magnús f. 21. júlí, 1900 7. Björn f. 9. nóvember, 1903.
Stefán flutti vestur 8. júní, 1874 til Ontario í Kanada. Hann hélt þaðan suður til Milwaukee í Wisconsin sama sumar og var í fyrsta hópnum sem nam land í Nýja Íslandi haustið 1875. Hann flutti þaðan í júlí árið 1880 og settist þá að í Pembina í N. Dakota. Seldi land sitt þar 1883 og settist að í Garðarbyggð.
