Stefán Þorsteinsson fæddist 8. ágúst, 1858 í Fljótsdal í N. Múlasýslu. Dáinn 10. nóvember, 1933 í Fargo í N. Dakota. Stephan T. Johnson vestra
Maki: 1) Anna Sigríður Tómasdóttir f. 7. september, 1854 í Vopnafirði í N. Múlasýslu, d. 2. september, 1890 í Minneota. 2) 13. júní, 1895 í Marshall: Bessie Peterson f. 1868 í Noregi.
Börn: Með Önnu 1. Clara Amalia Sigríður f. 8. september, 1882 2. Andrés Tómas f. 1890, d. í Fyrri heimstyrjöld 21. október, 1918. Með Bessie 1. Anna B. f. 1896 2. Thelma E. f. 1898 3. Júlía S. f. 1903 4. Florence f. 1904 5. Lillian f. 1905 6. Harold f. 1909.
Stefán flutti einsamall vestur til Minnesota árið 1882 og settist að í Lyon sýslu. Bjó í Marshall í manntali árið 1900 en flutti til Fargo þar sem fjölskyldan bjó. Þar vann Stefán hjá gluggaframleiðanda. Stefán þótti einstaklega þægilegur maður og átti mjög auðvelt með að laga sig að bandarísku samfélagi. Anna Sigríður flutti vestur árið 1880.
.
