ID: 8784
Fæðingarár : 1899

Valgerður Stefanía Ágústsdóttir Mynd VÍÆ I
Valgerður Stefanía Ágústsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu 30. september, 1899.
Ógift og barnlaus.
Stefanía fór vestur til Winnipeg árið 1905 með fóstru sinni, Helgu Vigfúsdóttur. Stefanía gekk í Jóns Bjarnasonar skóla í borginni og eftir það verslunarskóla. Það nám kom henni vel því hún fékk vinnu hjá Columbia Press Ltd. og seinna Wallingford Press. Hún tók mikinn þátt í félagsmálum landa sinna í borginni, starfaði mikið í góðtemplara stúku, söng í kór Fyrstu lúthersku kirkju og var í djáknanefnd hennar. Var félagi í Icelandic Canadian Club og í allmörg ár, 1945-54, fréttaritari The Icelandic Canadian.
