Stefanía Ólafsdóttir

ID: 1179
Fæðingarár : 1877
Fæðingarstaður : Árnessýsla
Dánarár : 1959

Stefanía Ólafsdóttir fæddist 14. febrúar, 1877 í Árnessýslu. Dáin í Manitoba 19. september, 1959.

Maki: 1903 Jónas Ari Sigurðsson fæddist í Húnavatnssýslu 6. maí, 1865. Dáinn í Winnipeg í Manitoba 10. maí, 1933.

Börn: 1. Björn Theodore f. í Seattle 29. janúar, 1907, d. 2. ágúst, 1960 2. Jón Ó. S. f. í Seattle 1. nóvember, 1911, d. 12. febrúar, 1961 3. Elín Guðrún f. í Seattle 15. ágúst, 1914.  Jónas átti með fyrri konu sinni: 1. Frímann Jónas 2. Torfi f. í Pembina, N.D.  20. janúar, 1891, d. Everett, Washingtonríki 15. apríl, 1925 3. Haraldur f. í Akra, N. Dakota 21. nóvember, 1899.

Stefanía fór til Kanada árið 1878 með móður sinni, Elínu Stefánsdóttur. Faðir hennar, Ólafur Þorsteinsson fór þangað árið áður. Þau settust að í Marklandi í Nova Scotia fluttu svo þaðan um 1880 og settust að í Pembinabyggð í N. Dakota. Þar kynntist Stefanía Jónasi. Hann flutti vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og fór þaðan sama ár suður til Hamilton í N. Dakota. Fór þaðan austur til Pembinaþorpsins en kaus síðan að nema guðfræði við nýstofnaðan prestaskóla í Chicago og útskrifaðist þaðan árið 1893. Vígður prestur sama ár og þjónaði íslenskum söfnuðum í N. Dakota til ársins 1901. Þá flutti hann vestur til Seattle í Washingtonríki og þjónaði þar í íslenskum söfnuði áður en hann tók kalli frá Konkordía söfnuði í Saskatchewan árið 1918. Þar þjónaði hann til 1927 en gerðist þá prestur safnaðarins íslenska í Selkirk í Manitoba þar sem hann bjó til dauðadags.