Steinunn S Jónsdóttir

ID: 3708
Fæðingarár : 1895

Steinunn Sigríður Jónsdóttur Mynd VÍÆ I

  Steinunn Sigríður Jónsdóttir fæddist 19. apríl, 1895 í Snæfellsnessýslu.

Maki:  12. apríl, 1916  Theodore Þ Thordarson fæddist í Gullbringusýslu 1. desember, 1890.

Börn: 1. Lára f. 5. desember, 1917 2. Svanfríður f. 23. febrúar, 1921 3. Helga Grímólfína f. 27. nóvember, 1927 4. Theodor Thomas f. 26. febrúar, 1931 5. Peter Gordon Roy f. 1. júlí, 1937.

Steinunn fór til Vesturheims árið 1889 með foreldrum sínum, Jóni Jóhannesi Jónssonar og Solveigu Grímólfsdóttur. Þau settust að í Mikley. Theodore var sonur Þórðar Tómasar Þórðarsonar og Arnfríðar Magnúsdóttur, sem vestur fluttu til Manitoba árið 1900. Þau voru fyrst á Gimli og síðan Selkirk. Theodore bjó hjá þeim á báðum stöðum en fór svo árið 1905 til Mikleyjar þar sem hann lærði trésmíði. Hann bjó í eynni til ársins 1921 og stundaði fiskveiðar með trésmíðinni. Hann var í Selkirk eftir það til ársins 1943 og svo Winnipeg til ársins 1948. Fór það ár vestur að Kyrrahafi og bjó í Vancouver.