ID: 8292
Fæðingarár : 1859
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla
Dánarár : 1945
Svava Ingibjörg Björnsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1859. Dáin í Winnipeg 19. júní, 1945.
Maki: 1883 Björn Sæmundsson f. í Strandasýslu árið 1851, d. 8. maí, 1944 í Winnipeg. Lindal vestra.
Börn: 1. Karl Franklín 2. Luther Melankton 3. George Fjölnir 4. Leifur Columbus 5. Laufey 6. Valdís Guðrún 7. Hjörtur Björn.
Svava fór vestur með móður sinni, Kristrúnu Sveinungadóttur árið 1876 og settust þær að í Winnipeg. Björn fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1878 og bjó þar fyrst um sinn. Björn tók þátt í skoðunarferð um svæði austan við Grunnavatn árið 1887 og nam land í sveit sem nefnd var Markland. Þangað fluttu hann og Svava árið 1891 og bjuggu þar til ársins 1921 en þá fluttu þau til Winnipeg.
