ID: 6805
Fæðingarár : 1870
Fæðingarstaður : Skagafjarðarsýsla
Dánarár : 1933

Sveinn Sveinsson Mynd RbQ
Sveinn Sveinsson fæddist í Skagafjarðarsýslu árið 1870. Dáinn í Kandahar í Vatnabyggð árið 1933. Solvason vestra.
Maki: Margrét Andrésdóttir. Hún var dóttir Andrésar Eyjólfssonar úr S. Múlasýslu og konu hans Kristínar Árnadóttur úr sömu sýslu.
Börn: 1. Óskar Sveinn 2. Karl Vilhjálmur 3. Sigrún Olga 4. Haraldur Andrés 5. Monika Þorbjörg Lilja 6. Sveinn Þórður.
Sveinn fór vestur með foreldrum sínum árið 1887 til Winnipeg í Manitoba. Þeir fóru fyrst til Nýja Íslands, þaðan árið 1890 til Mountain í N. Dakota og seinna til Selkirk. Árið 1907 fluttu Sveinn og Margrét á land sitt í Vatnabyggð í Saskatchewan. sem var í Kandahar/Dafoe byggð.
