Teitur Ingimundarson

ID: 13861
Fæðingarár : 1855
Fæðingarstaður : Gullbringusýsla
Dánarár : 1917

Teitur Ingimundarson fæddist í Gullbringusýslu árið 1855. Dáinn í Winnipeg 20. september, 1917. Thomas vestra.

Maki: Júlíana Guðmundsdóttir f. í Reykjavík 21. júlí, 1851, d. í Winnipeg 23. október, 1924.

Börn: 1. Frans f. 1883 2. Sigríður f. 1885 3. Fanney f. í Winnipeg 14. september, 1888.

Teitur var úr- og gullsmiður, flutti vestur til Winnipeg með fjölskyldu sína árið 1887 og var bróðir hans Guðjón honum samferða. Þar var Teitur í tvö ár en fór þá aftur til Íslands og vann við iðn sína nokkur ár en flutti svo aftur vestur um haf árið 1894. Þar kom hann sér fyrir í Winnipeg. Hann fylgdist með málum í Klondike og fór þangað sína fyrstu ferð árið 1899 en þær urðu alls fjórar. Þar var hann eitthvað við gullgröft og rak þar jafnframt verslun.