Þórarinn Guðlaugsson

ID: 3912
Fæðingarár : 1857
Fæðingarstaður : Snæfellsnessýsla
Dánarár : 1939

Halldóra Þorbjörg fór vestur um haf árið 1888. Mynd WtW

Þórarinn Guðlaugsson fæddist 23. september, 1857 í Snæfellsnessýslu. Dáinn í Lundarbyggð 5. janúar, 1939. Thorarinn Breckman vestra. Nafnið dregið af Klungurbrekku í Skógarstrandarhreppi.

Maki: 1889 Halldóra Þorbjörg Einvarðsdóttir f. í Mýrasýslu 21. ágúst, 1867, d. 19. janúar, 1938.

Börn: 1. Einvarður (Ed) f. í Winnipeg 9. febrúar, 1889  2. Karitas Kristný f.  Winnipeg 10. júní, 1897  3. Halldór Kristinn f. 1901 4. Guðlaugur Magnús f. 17. ágúst, 1900.

Þórarinn fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883 ásamt móður sinni, ekkjunni Karítas Guðmundsdóttur, og systkinum. Þau bjuggu í borginni fyrstu árin. Þórarinn tók þátt í uppreisn indjána í vestur Kanada árið 1885 og annaðist vistaflutninga til hermannanna. Hann og Halldóra fluttu í Lundarbyggð árið 1899 og bjuggu þar alla tíð.

Börn Þórarins og Halldóru: Karitas Kristný, Halldór Kristján og Guðlaugur Magnús Mynd WtW