Þorbjörg Þorláksdóttir

ID: 13161
Fæðingarár : 1865
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla

Þorbjörg Þorláksdóttir fæddist árið 1865 í N. Múlasýslu.

Maki: Magnús Jóhannesson f. 6. desember, 1836 í Eyjafjarðarsýslu, d. 16. september, 1929.

Börn: Upplýsingar vantar

Þorbjörg fór vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1876 með móður sinni, Sigríði Árnadóttur og hennar manni, Gísla Jónssyni. Hún giftist Magnúsi í Winnipeg árið 1883 og fluttu þau í Árnes árið 1885. Vesturíslensk heimild segir að Magnús hafi hætt búskap sex árum síðar og búið hjá Þorkeli, syni sínum til æviloka. Sennilega hafa þau slitið samvistir.