Þorgerður Eysteinsdóttir

ID: 2595
Fæðingarár : 1863
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1941

Þorgerður Eysteinsdóttir Mynd Dalamenn III

Þorgerður Eysteinsdóttir fæddist 27. febrúar, 1863 í Dalasýslu. Dáin 16. september, 1941 í Winnipeg.

Maki: 10. október, 1892 í Duluth Jón Magnússon fæddist 6. ágúst, 1867 í Skagafjarðarsýslu, d. í Winnipeg 2. mars, 1952.

Börn: 1. Hallgerður Róslaug f. í Duluth 12. apríl, 1893 2. Marta Emilía 3. Helga Eysteina. Þrjú börn dóu ung.

Þorgerður fór vestur til New York árið 1887 með systur sinni Solveigu. Þar voru þau eitt ár í Sayreville sýslu en fluttu þaðan til Winnipeg. Jón flutti vestur til Duluth á árunum 1887-1889. Þau fluttu til Winnipeg árið 1893 og bjuggu þar til ársins 1896. Þaðan lá leið þeirra til Keewatin í Ontario þar sem þau bjuggu í 9 ár og fluttu þaðan til Selkirk þar sem þau voru í 7 ár. Bjuggu í Winnipeg upp frá því.