Þorlákur Guðnason

ID: 9880
Fæðingarár : 1855
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1934

Þorlákur Guðnason: Fæddur að Kaldbak við Húsavík í S.Þingeyjarsýslu 22. júlí, 1855. Dáinn 5. október, 1934.

Maki: Inga Guðrún Hrólfsdóttir f. í Fnjóskadal í Eyjafjarðarsýslu 20. febrúar árið 1865, d. 12. september 1940.

Börn: 1. Vilhelm 2. Jakob 3. Hólmgeir 4. Steinlaug Sesselja 5. Sigurður 6. Sigurbjörg 7. Laufey Matthildur f. 4. maí, 1894.

Þorlákur fór vestur með móður sinni, Guðlaugu Hallgrímsdóttur og systur, Petrínu árið 1887. Þau fóru í Argylebyggð og vann Þorlákur hjá bændum, leigði svo lönd en keypti seinna. Bjuggu alla tíð í bygðinni. Inga fór vestur einsömul árið 1888.