Þorleifur Hallgrímsson

ID: 4204
Fæðingarár : 1886
Fæðingarstaður : Dalasýsla
Dánarár : 1980

Þorleifur Hallgrímsson og Elínborg Jónsdóttir Mynd IRS

Þorleifur Hallgrímsson fæddist í Dalasýslu 22. febrúar, 1886. Dáinn á Betel í Selkirk 7. maí, 1980.

Maki: 12. apríl, 1916 Elínborg Jónsdóttir f. 6. apríl, 1894, d. í Winnipeg 5. nóvember, 1958.

Börn: 1. Sylvia 28. júlí, 1917 2. Pétur f. 27. apríl, 1920 3. Jón Jóhannes f. 21. október, 1921, d. 29. apríl, 1923 í Riverton  4. Leifur Júlíus f. 1. janúar, 1928.

Þorleifur flutti vestur til Winnipeg í Manitoba með móður sinni, Þuríði Þorleifsdóttur árið 1888.  Þau settust að í Mikley. Þar hófu líka Þorleifur og Elinborg búskap en hún fór vestur með sínum foreldrum, Jóni Jóhannessyni og Solveigu Grímólfsdóttur árið 1899. Árið 1920 flutti Þorleifur með fjölskyldu sína til Riverton þar sem þau bjuggu til ársins 1945.