Þorsteinn Eyjólfsson

ID: 13213
Fæðingarár : 1854
Fæðingarstaður : N. Múlasýsla
Dánarár : 1938

Þorsteinn Eyjólfsson og Lilja Hallsdóttir ásamt sonum sínum, Eysteini og Magnúsi. Mynd Brot

Þorsteinn Eyjólfsson fæddist í N. Múlasýslu 9. nóvember, 1854. Dáinn í Nýja Íslandi árið 1938.

Maki: 6. janúar, 1885 Lilja Hallsdóttir f. 1864, d. 1936.

Börn: 1. Eysteinn f. 1886 2. Gunnar d. 1889 3. Magnús f. 1890, d. 1975 4. Sigrún Vilfríður f. 1891 5. Ásvaldur Þórir f. 1893, d. 1936 6. Sigurjón f. 1894, d. 1984 7. Stefán f. 1896 8. Jóhannes f. 1898, d. 1900 9. Sigurlaug Emilía f. 1898, tvíburasystir Jóhannesar 10. Una Herdís f. 1899, d. 1937 11. Friðrik Frank f. 1900, d. 1950 12. Sesselja Sigríður f. 1903 13. Gunnar Jóhann f. 1904, d. 1976.

Þorsteinn stundaði sjómennsku bæði við Íslandsstrendur og eins í Norðursjó. Hann flutti vestur til Bandaríkjanna árið 1878 og kom fyrst til Baltimore. Þaðan lá leið hans til Nýja Íslands þar sem hann bjó alla tíð.  Bróðir hans Stefán, sem vestur flutti 1874, nam land í Fljótsbyggð sem hann kallaði Hól. Þorsteinn tók við landinu árið 1880.