Þorsteinn Jónsson

ID: 8821
Fæðingarár : 1847
Fæðingarstaður : Eyjafjarðarsýsla

Þorsteinn Jónsson Mynd SÍND

Friðbjörg Guðlaugsdóttir Mynd SÍND

Þorsteinn Jónsson fæddist í Eyjafjarðarsýslu árið 1847. Stundum Foster Johnson vestra.

Maki: Friðbjörg Guðlaugsdóttir f. 1849 í S. Þingeyjarsýslu, d. 6. janúar, 1924

Börn: 1. Rósa f. 1872 2. Henry f. 1876 í Millbrook í Ontario 3. Lilja f. 1877 í Millbrook í Ontario.

Þau fluttu vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og voru fyrsta veturinn í Kinmount en um vorið 1875 settust þau að í Millbrook austur af Toronto.  Þau voru þar í tvö ár en fluttu vorið 1877 til Winnipeg þar sem þau voru um sumarið. Námu land í Nýja Íslandi þar sem þau bjuggu í tvö ár en gáfust þá upp á baslinu, fluttu til Winnipeg um vorið 1879 þar sem þau undirbjuggu flutning til N. Dakota. Það var svo um haustið að þau fluttu til Pembina og voru þar fram á vor 1880 en þá festu þau sér land á svæði nærri þorpinu Glasston sem er rúmum 30 km suðvestur af Pembina. Bjuggu þar til ársins 1903 en þá lá leiðin í bæinn Cavalier og hugðust búa þar til frambúðar en vegna heilsubrests kaus Þorsteinn að fara annað og flutti til Colorado. Þar heilsaðist honum vel og efnahagurinn blómstraði svo þegar Lilja dóttir þeirra, þá gift kona í Los Angeles í Kaliforníu, stakk upp á að þau flyttu þangað þá fluttu þau til Kaliforníu árið 1917.

Íslensk arfleifð :