Þorsteinn Jónsson

ID: 14450
Fæðingarár : 1850
Fæðingarstaður : S. Þingeyjarsýsla
Dánarár : 1929

Þorsteinn Jónsson Mynd FLNÍ

Ingibjörg Einarsdóttir með eina dótturdóttur sína Mynd FLNÍ

Þorsteinn Jónsson fæddist í S. Þingeyjarsýslu 21. júní, 1850. Dáinn 15. júní, 1929 í Nýja Íslandi. Mjófjörð vestra.

Maki: 17. júlí, 1884 Ingibjörg Einarsdóttir f. 30. mars, 1843 í S. Múlasýslu, d. 17. apríl, 1925

Börn: 1. Ólafur f. 11. maí, 1884. Ingibjörg var ekkja eftir Eirík Pálsson Ísfeld og átti með honum:  1. Anna f. 1867 2. Ágúst Ísfeld f. 1870 3. Sigurjón f. 1874 4. Andrés Fredholm f. 1877 5. Guðlaug f. 1880.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1886 og þaðan í Akrabyggð í N. Dakota. Þaðan fluttu þau til Nýja Íslands árið 1889 og námu land í Víðirnesbyggð og nefndu það Hólm.