Tryggvi Jóhannes Guðmundsson fæddist 17. september, 1865 í Flateyjardal í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Duluth 1. ágúst, 1917.
Ógiftur og barnlaus.
Tryggvi flutti úr Grímsnesi í Grýtubakkahreppi vestur um haf árið 1889, trúlega með Magnetic frá Akureyri. Allstór hópur úr sýslunni fór vestur það ár og var ákvörðunarstaður Winnipeg í Manitoba samkvæmt farbréfum. Í Vesturfaraskrá er þetta skráð við nöfn allra sem fóru með Magnetic frá Akureyri 1889 nema Tryggva. Almanak Ólafs Þorgeirssonar í Winnipeg greinir frá andláti hans árið 1918 bls. 123 yfir látna í ágúst, 1917 á þennan hátt: ,,1. Tryggvi Guðmundsson, í Duluth; frá Brettingsstöðum í Flateyjardal í Þingeyjarsýslu; 50 ára“ Þetta er merkilegt því engar heimildir í Minnesota nefna Tryggva nokkurn tíma á nafn! Hver ætli hafi sent dánartilkynninguna til Winnipeg? Getgátur eru vestra um sérstaka nafnabreytingu!
