
Unnur Anna Friðriksdóttir Mynd VÍÆ III
Unnur Anna Kristjánsson fæddist í Winnipeg, 23. september, 1937. Brown í hjónabandi.
Maki: 30. maí, 1964 Dr. John Davidson Brown f. 26. júní, 1938.
Barnlaus.
Unnur Anna var dóttir Friðriks Kristjánssonar, fasteignasala í Winnipeg og konu hans, Hólmfríðar Jósefsdóttur. Að loknu grunnskóla námi tók við framhaldsnám. Árið 1959 lauk hún R.N.prófi í Winnipeg General Hospital of Nursing og kennaraprófi í hjúkrun frá University of Manitoba. Næst fór hún til Quebec þar sem hún lauk Bachelor of Nursing prófi frá MCgill University í Montreal. Þaðan lá leið hennar vestur til Seattle þar sem hún kláraði Master of Nursing frá University of Washington. Á námsferlinum hlaut hún nokkrar viðurkenningra fyrir framúrskarandi árangur. Hún kaus að hefja vinnu við hjúkrun í heimaborg sinni, Winnipeg þar sem hún vann við General Hospital og árin 1961-1962 við Victoria Hospital. Hún sneri sér að kennslu og kanndi hjúkrun við University of Manitoba árin 1963-1965. Í lok tímabilsins varð hún skólastjóri Hjúkrunarkvennaskóla General Hospital í Winnipeg. Maður hennar átti írskan föður og skoska móður. Hann lauk prófum frá University of Manitob og gerðist læknir við geðveikrahælið í Selkirk.