ID: 15100
Fæðingarár : 1862
Fæðingarstaður : Kjósarsýsla
Dánarár : 1891
Guðmundur Guðmundsson fæddist 26. nóvember, 1862 í Kjósarsýslu. Dáinn 9. maí, 1891
Maki: 1887 Þóra Gísladóttir f. 1859 í Kjósarsýslu.
Barn: Gróa Guðmundína
Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887 og bjuggu þar fyrst um sinn. Ári seinna námu þau land í Þingvallabyggð í Saskatchewan og settust þar að. Þegar Guðmundur féll frá réðst Þorkell, tvíburabróðir Þóru til hennar sem vinnumaður en hafði farið vestur árið 1886. Hann var hjá henni í eitt ár en þá leysti Jón Sveinsson hann af hólmi, seinna kvæntist hann Þóru og fluttu þau til Alberta í Kanada og settust að nærri Markerville.
