Þuríður Þorbergsdóttir

ID: 7613
Date of birth : 1838
Date of death : 1921

Þuríður Þorbergsdóttir fæddist 8. janúar, 1838 í Skagafjarðarsýslu. Dáin 6. júlí, 1921 í Riverton.

Maki: Þorvaldur Þorvaldsson f. í Skagafjarðarsýslu 30. júlí,1842. Dáinn í Riverton 6. mars, 1931. Thorvalson vestra.

Börn: 1. Sveinn f. 1876 2. Guðrún f. 1877 3. Þorvaldur f. 1879 4. Þorbergur f. 24. ágúst, 1883.

Þau fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1887. Námu land í Árnesbyggð og nefndu Víðidalstungu. Þar bjó hann til ársins 1916 en flutti þá til Riverton.