ID: 8604
Date of birth : 1884

Haraldur Ólafsson Mynd VÍÆ I
Haraldur Ólafsson fæddist á Akureyri 24. ágúst, 1884.
Maki: María Metúsalemsdóttir f. á Langanesi 6. júní, 1881, d. í N. Dakota 27. nóvember, 1949.
Börn: 1. Einar f. 6. febrúar, 1921 2. Helga f. 16. janúar, 1923. Ólu upp þrjú fósturbörn, Harald, Einar og Kristínu Einarsson.
Haraldur var eitt ár við kjötiðnaðarnám í Kaupmannahöfn og vann við það alla ævi. Fyrst í verslun Knudsen á Akureyri, þá þrjú ár 1919-1922 í Wynyard í Saskatchewan og átti síðan og rek eigin kjötverslun í Mountain, N. Dakota. Þar stundaði hann líka landbúnað sem hann hætti svo árið 1946. Sat í bæjarstjórn Mountain um tíma og var virkur í félagsmálum landa sinna í N. Dakota.
