Þórunn Einarsdóttir

ID: 8755
Date of birth : 1874
Date of death : 1944

Þórunn Einarsdóttir Mynd VÍÆ IV

Þórunn Einarsdóttir fæddist 23. maí, 1874 í Eyjafjarðarsýslu. Dáin í Miami, Florida 16. mars, 1944

Maki: 1894 Magnús Teitsson f. í Helgafellssveit í Snæfellsnessýslu 18. september, 1869, d. í Vancouver, 6. desember, 1936. Skrifaður Tait vestra.

Börn: 1. Edward Byron f. í Sinclair 1897 2. Claire Valentine f. Sinclair 1899 3. Reginald T f. 1902 4. Thelma R f. 1904 5. Lawrence Theodore f. 1908. Dáinn 1956 6. Christian A. F. 1914. Dáinn 1953.

Þórunn flutti vestur árið 1883 með foreldrum sínum, Einari Jóhannessyni og Guðrúnu Abrahamsdóttur. Magnús flutti vestur 14 ára gamall árið 1883 með frændfólki. Bjó í Winnipeg fyrstu árin. Flutti seinna í Argylebyggð þar sem hann keypti land með Stefáni Árnasyni úr Eyjafjarðarsýslu. Seinna seldi Magnús sinn hlut og flutti til Sinclair í vestur Manitoba. Flutti til Vancouver 1934 þar sem hann dó.