Óttar Sveinsson

ID: 9188
Date of birth : 1880
Place of birth : S. Þingeyjarsýsla

Óttar Sveinsson Mynd VÍÆ IV

Óttar Sveinsson fæddist 7. desember, 1880 í S. Þingeyjarsýslu. Dáinn 23. september, 1963.

Maki: Magnea Björnsdóttir f. vestra.

Börn: 1. Norman 2. Verne 3. Arthur 4. dóttir, nafn vantar.

Óttar fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum og systkinum árið 1883. Þau settust að í Nýja Íslandi. Óttar nam land í Vatnabyggð í Saskatchewan og bjó í Wynyardbyggð. Hætti búskap nokkuð snemma og sneri sér að trésmíði. Þótti góður smiður. Flutti úr byggðinni til Chicago þar sem hann bjó einhver ár en þaðan fór hann svo til Blaine í Washingtonríki. Magnea var dóttir Björns Jósefssonar og Þóru Guðmundsdóttur sem vestur fluttu árið 1883 og lengi bjuggu í Mountain, ND.