Sigurður Bjarnason fæddist í Ontario í Kanada 13. nóvember, 1903. Ingimundsson vestra.
Maki: 19. maí, 1941 Evelyn Molson f. 21.maí, 1910. Ingimundsson í hjónabandi.
Börn: 1. Signy Lynne f. 19. janúar, 1944.
Foreldrar Sigurðar voru Bjarni Ingimundsson og Guðrún Þorsteinsdóttir sem vestur fluttu árið 1886. Þau gengu í hjónaband í Churchbridge, Saskatchewan árið eftir. Þar í grennd hófu þau búskap en árið 1894 fluttu þau á Big Point við austanvert Manitobavatn og bjuggu á ýmsum stöðum við vatnið. Sigurður gekk í grunn-og menntaskóla í Langruth og eftir það í University of Manitoba í Winnipeg. Þar lauk hann B.Sc. E.E. námi í refmagnsverkfræði. Að því loknu vann hann hann á ýmsum stöðum í Manitoba, Toronto og í Brasilíu. Síðustu árin var hann verkfræðingur hjá Foundation of Canada Co.
