Jórunn Sigurðardóttir

ID: 20694
Date of birth : 1883
Date of death : 1963

Jórunn Sigurðardóttir Mynd VÍÆ V

Kjörsonurinn Elmer Milner Mynd VÍÆ V

Jórunn Sigurðardóttir fæddist á Mýrum í A. Skaftafellssýslu 30. september, 1883. Dáin á Betel á Gimli 1963. Mýrmann vestra.

Ógift.

Börn: Kjörsonur Elmer Milner f. 23. júlí, 1921, d. á Steep Rock í Manitoba 12. maí, 1945. Móðir hans var Jófríður, systir Jórunnar.

Jórunn flutti til Vesturheims árið 1903, um svipað leyti og móðir hennar, Þuríður Þorsteinsdóttir og systkini hennar. Jórunn vann við heimilisstörf á nokkrum stöðum í Manitoba til ársins 1907. Það ár fékk hún lömunarveiki og varð eftir það að vera í hjólastól. Síðustu ár æfinnar var hún á Betel í Gimli.