Jenny A E Nicolson

ID: 20695
Born west
Date of birth : 1911

Jenny A E Nicolson Mynd VÍÆ V

Farquhar Nicolson Mynd VÍÆ V

Jenny Artha Emily Moore fæddist í Winnipeg 27. desember, 1911. Notaði nafnið Emily í daglegu tali.

Maki: 21. ágúst, 1930 Farquhar Nicolson f. í Skotlandi 29. júlí, 1898, d. 10. nóvember, 1979.

Börn: 1. Alistair John Nicholson f. 11. febrúar, 1933 2. Emily Ann f. 2. september, 1937 3. Raymond f. 10. desember, 1939.

Emily var dóttir John Arthur Moore, skoskur uppruni og konu hans, Guðbjargar Friðgerðar Sigurðardóttur. Fósturforeldrar hennar voru Jóhannes Pétursson og Salome Jónatansdóttir og fór Emily með þeim vestur. Óljóst hversu lengi hún bjó hjá þeim.  Farquhar var í breska hernum í Fyrri heimstyrjöldinni, gekk eftir það í kennaraskóla í Skotlandi. Að námi loknu flutti hann til Kanada og var þar kennari. Emily vann í pósthúsi, keyrði um skeið leigubíl og vann svo ýmis verslunarstörf. Þá vann hún einnig hjá Rauða krossinum, kanadíska og starfaði fyrir aldraða í Winnipeg þar sem þau hjón bjuggu.