Stefán Árni Scheving fæddist 21. júní, 1924 í Mountain, N.D. Steve A Scheving vestra.
Maki: 12. júní, 1950 Nancy May Warren f. í Los Angeles 7. mars, 1929.
Börn: 1. Jóhann Stefán f. 21. apríl, 1954 2. Stefán Warren f. 29. apríl, 1954 3. Nancy Ann f. 8. febrúar, 1957 4. Ralph Phillip f. 13. mars, 1958.
Stefán var sonur Stefáns Þorkels Scheving og Önnu Valgerðar Guðmundsdóttur í N. Dakota. Hann gekk í miðskóla í Ballard og var tvö ár í háskólanum University of Washington í Seattle. Hann var vélstjóri hjá stórfyrirtækinu, Pitney Bowes Inc. Hann gekk í herinn og var þrjú ár á vígstöðvunum í Evrópu í Seinni Heimstyrjöldinni. Nancy var dóttir Ralph Emerson Warren og Ástu Ruby Brown, dóttur Jóhanns Jóhannssonar Straumfjörðs og Bjargar Kristjánsdóttur í Seattle.
