ID: 9645
Date of birth : 1877
Place of birth : S. Þingeyjarsýsla

Kristján Sigmarsson

Louise A. Kunz
Kristján Sigmarsson fæddist 6. júlí, 1877 í S. Þingeyjarsýslu. Eftirnafnið Sigmar vestra. Dáinn í Manitoba 27. september, 1948.
Maki: 23. janúar, 1916 Louise Auguste Pauline Kunz f. 16. ágúst, 1889 í Hamborg.
Kristján fór vestur til Winnipeg í Manitoba með foreldrum sínum og systkinum árið 1883. Þau settust að í Argylebyggðinni og þar ólst Kristján upp. Hann hlau ágætis menntun og reyndist klókur verslunarmaður. Átti og rak verslanir í Glenboro í félagi við Sigurjón bróður sinn sem þeir nefndu Sigmar Bros & Co. Frændi þeirra, Kristján Jónsson frá Bárðardal tók þátt í rekstri þeirra um skeið. Árið 1919 seldu þeir bræður og fluttu til Winnipeg. Þar hélt Kristján áfram verslunarrekstri.
