Ísleifur Guðjónsson

ID: 10339
Date of birth : 1857
Place of birth : N.Þingeyjarsýsla
Date of death : 1941

Ísleifur og Guðleif og fjögur börn þeirra Mynd WtW

Ísleifur Guðjónsson fæddist 27. febrúar, 1857 í N. Þingeyjarsýslu. Dáinn í Lundarbyggð 20. október, 1941. Isleifur Johnson vestra.

Maki: 18. júní, 1883 Guðleif Jónsdóttir f. 31. janúar, 1864 í N. Þingeyjarsýslu, d. 15. júlí, 1953.

Börn: 1. Hermann f. 29. júlí, 1888 2. Kristrún f. 29. október, 1890 3. Sigurbjörg f. 1893, d. 1895 4. Sigurbjörg (Sibba) f. 6. apríl, 1895 5. Jónatan f. 12. október, 1897 6. Kristín Guðrún f. 4. mars, 1900 7. Leifur Júlíus f. 6. júní, 1903 8. Unnur Sigurlaug (Lauga) f. 30. ágúst, 1906.

Íslefur, Guðleif og móðir hans, Kristín Bjarnadóttir fluttu vestur til Winnipeg í Manitoba árið 1883. Þau bjuggu þar fyrsta veturinn en fluttu þaðan ári síðar. Ísleifur fékk vinnu við jarnbrautarlagningu nærri Banff í Alberta og var þar einhvern tíma. Sneri þaðan og nam land í Lundarbyggð árið 1887.