Gestur Ingimundarson

ID: 10566
Date of birth : 1882
Place of birth : S. Þingeyjarsýsla

Gestur Ingimundarson fæddist í S. Þingeyjarssýslu 1882. Dalman vestra.

Hann fór vestur sjö ára gamall til Winnipeg í Manitoba með Guðjóni Jónssyni Vopna og fjölskyldu hans árið 1889. Bjó hjá þeim uns þau fluttu í Vallarbyggð í Saskatchewan árið 1900. Hann nam þar land en líkt og þeir þá flutti hann í Vatnasbyggð og keypti land þar með Jóni Björgvin Guðjónssyni Vopna.