Haraldur Hjálmsson

ID: 2231
Date of birth : 1894
Place of birth : Borgarfjarðarsýsla

Haraldur Hjálmsson fæddist í Borgarfjarðarsýslu 27. janúar, 1894.

Maki: 17. júlí, 1921 Thorstína Guðbjörg Bergþórsdóttir f. í Lundarbyggð í Manitoba 3. júní,1901.

Börn: 1. Guðný Bergþóra f. 25. ágúst, 1922 2. Skúli Franklín f. 26. júlí, 1924 3. Lawrence Thorsteinn f. 26. maí,1926 4. Alda Yvonne f. 19.janúar, 1928 5. Ivy Sigríður Kristín f. 27. október, 1929 6. Elva Margrét f. 27. júlí, 1932.

Haraldur flutti til Vesturheims 6 ára gamall árið 1900 með Guðmundi Torfasyni og fjölskyldu hans. Báðir ættaðir úr Borgarfirði. Haraldur vann við húsasmíði, bæði í Manitoba og Saskatchewan. Thorstína var dóttir Bergþórs Björnssonar og Kristínar Þorsteinsdóttur í Leslie í Saskatchewan.