Guðmundur Þórðarson

ID: 11710
Date of birth : 1854
Place of birth : N. Múlasýsla
Date of death : 1904

Guðmundur Þórðarson fæddist í N. Múlasýslu árið 1854. Dáinn 24. mars, 1904.

Hann flutti vestur til Ontario í Kanada með föður sínum, stjúpu og systkinum árið 1878. Eftir fáein ár í Ontario fluttu þau vestur til Manitoba þar sem Guðmundur bjó lengstum í Winnipeg. Hann nam land í Þingvallabyggð í Saskatchewan upp úr aldamótum og hugðist hefja búskap. Varð úti í byggðinni.