ID: 12033
Date of birth : 1879

Sigvaldi Jónsson Mynd VÍÆ II
Sigvaldi Jónsson fæddist 27. maí, 1879 í N. Múlasýslu.
Ókvæntur og barnlaus.
Hann flutti vestur árið 1906 og fór fyrst til Winnipeg. Nam skömmu síðar land í Vatnabyggð í Saskatchewan suður af Leslie. Þar var hann með búskap, einbúi ein 50 ár. Settist að í þorpinu Foam Lake þar sem hann var fáein ár en færði sig svo árið 1962 á dvalarstað aldraða í Wadena í Saskatchewan.
