Ingólfur Markússon

ID: 13639
Date of birth : 1863
Place of birth : Eyjafjarðarsýsla

Ingólfur Markússon: Fæddur 1863 í Hrafnagilshreppi í Eyjafjarðarsýslu. Árnason vestra.

Maki: María Frímannsdóttir f. 1872 í N. Múlasýslu.

Börn: 1. Jean Ágústa Halldóra 2. Leó 3. Gústaf Adolf 4. Leona Diana 5. Inga Rakel Sigríður 6. Elma Ingibjörg 7. Róma Lára Aðalheiður 8. Kári Lorenzo

Ingólfur fór vestur árið 1893 og var fyrsta veturinn í Selkirk. Flutti til Glenboro ári seinna og vann þar ýmis störf en tók land í Hólabyggð skömmu fyrir aldamótin. Bjó á landinu til ársins 1921 og flutti þá til Cypress River. Þar var hann umsjónarmaður barna- og unglungaskólans um árabil.