Óskar Á Gíslason

ID: 18508
Date of birth : 1881

Óskar Ásgeir Gíslason Mynd VÍÆ III

Óskar Ásgeir Gíslason fæddist í S. Þingeyjarsýslu 3. október, 1881.

Maki: 16. febrúar, 1913 Steinunn Bergljót Nordal f. í Glenboro í Manitoba 2. febrúar, 1895.

Börn: 1. Hrefna f. 4. janúar, 1914 2. Conrad f. 15. júní, 1915 3. Olga f. 19. febrúar, 1917 4. Oscar Sigurður f. 9. júlí, 1918 5. Victor f. 1. apríl, 1920 6. Lena f. 22. janúar, 1922 7. Lárus f. 18. júní, 1925 8. Olive Kristbjörg f. 8. ágúst, 1928 9. Thorsteinn Bennett f. 30. júlí, 1930. Öll fædd í Leslie í Saskatchewan.

Óskar fór til Manitoba í Kanada árið 1901 þar sem hann vann fyrstu árin við fiskveiðar á veturna en vöruflutninga á skipum á sumrin. Árið 1913 keypti hann land nærri Leslie í Saskatchewan og hóf búskap. Frá byrjun tók hann virkan þátt í samfélagsmálum, formaður símafélagsins, ritari hveitisamlagsins og sat í sveitastjórn í ein 20 ár. Hann skrifaði mikið um samfélagsmál og birtust greinar eftir hann bæði í Lögbergi og Heimskringlu en einnig í kanadískum blöðum og tímaritum.