Skúli Hannesson

Vesturfarar

Skúli vann hin ýmsu störf eftir komuna til Winnipeg, meðal annars á lögfræðistofu ein tólf ár og fékk svo áhuga á fasteignasölu. Hann var einn af stofnendum félagsins Oddsson, Hansson & Vopni með þeim Þorsteini Oddssyni og Jóni J. Vopna. Seinna stofnaði hann sitt eigið félag, Skuli Hannsson & Co og rak það um árabil með góðum árangri.

 

Hér er auglýsing frá Skúla í Heimskringlu árið 1912. Þarna hefur hann fengið rétt hjá borginni til að selja lóðir í nýju hverfi í Winnipeg.