Í Vesturíslenskar Æviskrár V segir svo bls. 225-226: ,,Daniel John Simundson hefur aflað sér víðtækrar menntunar í háskólum Bandaríkjanna. Námsferill hans er í stuttu máli þessi: 1951-1955 nám við Stanford University, Palo Alto., California. B.A. 1955. 1955-1959 Lutheran School of Theology, Chicago, Ill. M. Div.1959. 1967-1971 Harvard University, Cambridge, Mass. Ph.D. 1971. Heiðursfélagi í Phi Beta Kappa, Stanford University 1955, heiðursverðlaun (Fellowship) við Harvard University 1967-1971, vann Schiotz verðlaun (Felloship) Lúthersku kirkjunnar í Ameríku 1978-1979. Prestur við Salem Lúthersku kirkjuna í Mendon, Ill. 1959-1961, spítalaprestur við Washington University Center, St. Louis, Missouri 1961-1967, apstoðarprófessor í trúfræðum við Appalachian State University, Boone, North-Carolina 1971-1972 og frá 1972 prófessor í Gamlatestamentisfræðum við Luther Northwestern Theological Seminary, St. Paul, Minnesota og er það enn. Frá 1979 hefur hann einnig verið forseti þeirrar deildar. Er höfundur, ásamt öðrum, að bókunum ,,Chosen: The story of God and his people”, Minneapolis, Augsburg 1976, ,,Faith under Fire”, Minneapolis, Augsburg 1983. Hann hefur einnig ritað fjölda greina og ritdóma í Lutheran Standard og mörg önnur blöð og tímarit í Bandaríkjunum.”
