Dorothy Grímsdóttir fæddist 31. desember, 1899 í Garðarbyggð í N. Dakota. Maki: 12. apríl, 1938 Marvin William Rafnsson. Börn: Clifford Patrick f. 17. mars, 1940. Dorothy var dóttir Gríms Þorðarsonar og Ingibjargar Snæbjörnsdóttur í Garðarbyggð. Marvin var íslenskrar ættar, faðir hans, var Guðmundur Rafnsson en móðirin hét Aðalbjörg. Bæði fædd á Íslandi.
Julía M Grímsdóttir
Julía Grímsdóttir fæddist 3. maí, 1901 í Garðarbyggð í N. Dakota. Maki: 1) 27. desember, 1930 George R. Blackburn frá Chicago í Illinois, d. 25. desember, 1948. Börn: Sylvia Mary f. 4. október, 1933. Julía var dóttir Gríms Þórðarsonar og Ingibjargar Snæbjarnardóttur í Garðarbyggð. Hún gekk menntaveginn, lauk hjúkrunarprófi árið 1924 frá háskóla í Minnesota. George var írskrar og enskrar …
