Anna Sigfúsdóttir

ID: 8253
Date of birth : 1842
Place of birth : Eyjafjarðarsýsla
Date of death : 1827

Anna Sigfúsdóttir fæddist í Eyjafjarðarsýslu 10. apríl, 1842. Dáin 1927 í Nýja Íslandi.

Maki: 27. september, 1865 Sigurbjörn Hallgrímsson f. í Eyjafjarðarsýslu 6. ágúst, 1841, d. 1928.

Börn: 1. Kristín f. 1866 2. Guðrún Helga f. 1869, 3.  Hallgríma Friðrika. Tvö börn þeirra dóu í æsku.

Fluttu vestur til Ontario í Kanada árið 1874 og voru þar fyrsta árið. Fluttu til Nýja Íslands árið 1875 og voru fyrst á Gimli. Fóru þaðan í Árnesbyggð þar sem þau voru fjögur ár. Þau færðu sig norður í Fljótsbyggð árið 1883 en voru þar aðeins eitt ár því 1884 eru þau sest að í Flatatungu í Árnesbyggð og bjuggu þar allar götur síðan.